
Stærsti matarviðburður á Íslandi
Frítt inn — Allir velkomnir
DAGAR
17–19 Júlí
SÖLUAÐILAR
Matarvagnar & básar
GESTIR
Í fyrra
KEPPNI
Besti götubiti Íslands
GÖTUBITAHÁTÍÐ Í HLJÓMSKÁLAGARÐINUM
Götubitahátíðin er stærsti matarviðburður á Íslandi og fer fram í fallega Hljómskálagarðinum í hjarta Reykjavíkur. Á þremur dögum safnast saman yfir 40 söluaðilar í matarvögnum og sölubásum sem bjóða upp á fjölbreyttan og spennandi mat frá öllum heimshornum.
Á hátíðinni er einnig haldin keppnin um besta götubita Íslands í samstarfi við European Street Food Awards. Sigurvegarinn mun keppa fyrir hönd Íslands á lokakeppninni í Evrópu í lok september.
Í fyrra mættu yfir 100 þúsund gestir og hátíðin er öllum opin og frítt er inn á viðburðinn.


YFIR 40 SÖLUAÐILAR
Frá borgurum og pizza til sushi og tacos — eitthvað fyrir alla.





Söluaðilar verða birtir hér þegar nær dregur hátíðinni.
Ertu söluaðili? Hafðu samband til að sækja um pláss.
BESTI GÖTUBITI ÍSLANDS
Á Götubitahátíðinni er haldin keppnin um besta götubita Íslands í samstarfi við European Street Food Awards. Gestir geta kosið um sinn uppáhalds götubita og sigurvegarinn mun keppa fyrir hönd Íslands á lokakeppninni í Evrópu.